Hagvöxtur er ósjálfbær

Punktar

Hagvöxtur er gallað hugtak. Mælir bara breytingar á umfangi kaupsýslu. Hætti fólk að baka brauð og fari að kaupa þau, eykur það hagvöxt. Eykst líka, ef fólk hættir að þvo bílinn sjálft og fer með hann í þvottastöð. Hann mælir ekki eigin vinnu, vinnuskipti eða samhjálp, sem eykst í kreppum. Að þessu frádregnu er eðlilegur hagvöxtur innan við 1% á ári. Skrítið er, að hagkerfi með 1% hagvöxt standi undir 4% raunvöxtum. Mælikvarðar á borð við hagvöxt eru dæmi um ósjálfbær hagkerfi, þar sem meintur og ímyndaður arður er látinn bólgna út. Kreppuna einkennir arður, sem á sér ekki stoð í raunveruleikanum.