Hagstæðir áhættuþættir

Punktar

IceSave samningurinn er orðinn svo góður, að áhættuatriðin eru meira til góðs en ills. Hugsanlega verður krafa Tryggingasjóðs að forgangskröfu, sem bætir stöðu IceSave. Hugsanlega verða heildsöluinnlán að almennri kröfu, sem líka bætir stöðu IceSave. Fyrir hvorugu er gert fyrir í því reikningsdæmi, sem sýnir kostnað af IceSave upp á 32 milljarða. Ef annað hvort atriðið fellur á betri veg, hverfur IceSave skuldin. Andstæðingar gera því skóna, að neyðarlög Geirs verði ógilt, en þá fellur ekki bara IceSave, heldur miklu meira: Bankar, ríkissjóður og þjóðin. Það væri bara sjálfsmorð Hæstaréttar.