Teitur Atlason ofurbloggari upplýsir, að stjórnarmaður í Bankasýslu ríkisins hefur einkahagsmuna að gæta. Steinunn Kristín Þórðardóttir rekur ráðgjöf um fjárfestingar á Íslandi. Þetta endemis rugl er dæmi um, hversu afvegaleitt ríkiskerfið er hér á landi. Engin furða er, þótt stjórnin velji sér forstjóra, sem eingöngu hefur starfað á vegum flokksins síns. Bankasýsla ríkisins er orðin marklaus, gagnslaus og einkum traustlaus. Hver tekur mark á stofnun, sem skipuð er hagsmunaaðilum og stundar sjúklegar mannaráðningar?