Hafa sannað vanhæfni sína

Punktar

Það gefur afleit skilaboð, ef bankar semja við ofurmenni útrásarinnar um afskriftir af lánum. Sérstaklega ef það er liður í viðleitni við að halda rekstri áfram í höndum þessara ofurmenna. Mér er óskiljanlegt, að talið sé gott, að þeir reki sjálfir fyrirtæki í skjóli eftirgjafa á milljarðaskuldum. Ofurmenninn verða að hverfa frá rekstri fyrirtækja. Hafa margfalt sannað, að þau eru ekki hæf. Ríkisstjórnin má ekki láta viðgangast, að skilanefndir og bankastjórar haldi verndarhendi yfir þeim, sem ollu hruninu. Kominn er tími til, að heilög Jóhanna áminni afvegaleiddar skilanefndir og bankastjóra.