Hættur að lesa Vísi

Punktar

Hættur að lesa Visir.is. Af tæknilegum ástæðum. Nýlega var vefnum breytt, líklega fyrir jólin. Við það þyngdist hann svo, að ég þarf að bíða eftir, að síður opnist. Stundum óratíma. Til skamms tíma var Ruv.is þyngstur íslenzkra fréttavefja, en svona galinn var hann aldrei. Nú hefur Ruv.is lagast og ég er farinn að lesa hann aftur. Í staðinn hætti ég við Visir.is. Ég hef ekki þolinmæði til að eltast við tækni, sem hugsar ekki um kúnnann. Allt verður að gerast á örskammri stund á vefnum, annars fara viðskiptavinirnir annað. Heimur internetsins er harður og þar duga engin vettlingatök í tæknimálum.