Hættulegir útlendingar.

Greinar

“Náttúra landsins er víða í hættu vegna mikillar og oft ógætilegrar umferðar ferðamanna og stappar sums staðar nærri örtröð. Einkum á þetta við um gróðurvinjar í óbyggðum.”

Þessi aðvörunarorð eru birt í greinargerð frá ráðstefnu Félags gæzlumanna. Þar er kvartað um, að gæzlumenn séu of fáir, náttúruverndarlögum sé ekki framfylgt og að ekki sé til nein heildarstefna í ferðamálum landsins.

Í greinargerðinni kemur fram, að uggur hefur setzt að mörgum vegna mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna. Útlendingar eru mikill meirihluti þeirra, sem ferðast um hálendið og eru gæzlumenn á þeim stöðum orðnir kvíðafullir.

Gæzlumenn eru í alvöru að velta fyrir sér hugmynd frá umhverfisnefnd Ferðamálaráðs um að beita ítölu í fjölsótta ferðamannastaði, takmarka aðgang að þeim. Í greinargerð þeirra er meira að segja slegið fram hugmynd um takmörkun á aðgangi erlendra ferðamanna að Íslandi.

Gæzlumenn taka ekki beinlínis afstöðu til þessara hugmynda. Þeir segja þó, að samræmi þurfi að vera milli tilrauna til að fá sem flesta útlendinga til landsins og viðbúnaðarins, sem Íslendingar hafa til að taka á móti þeim og veita þeim þjónustu.

Þeir vilja gera hvort tveggja í senn, bæta viðbúnaðinn og takmarka ferðamannaaukninguna, meðan viðbúnaðurinn er að batna. Í því skyni vilja þeir um tíma draga úr landkynningu og úr aukningu á gistirými.

Athyglisvert er, að gæzlumenn telja, að Íslendingar hafi að meðaltali næmari tilfinningu en útlendingar fyrir því, hvernig á og má umgangast íslenzka náttúru. Stafar það sennilega af því, að útlendingarnir eru vanir náttúru, sem þolir meiri umgengni.

Í greinargerðinni er vitnað í gæzlumann, sem kvartar sáran undan erlendum leiðsögumönnum. Nefnir hann sérstaklega hópa frá Penn World, Wikingen Reisen, Seven Ocean Tours og Studiosus.

Raunar er sérlega ámælisvert, að íslenzk stjórnvöld skuli ekki stranglega banna slíkar hópferðir án íslenzkra leiðsögumanna, sem bæði hafa atvinnuleyfi og sérmenntun við íslenzkar aðstæður.

Þar á ofan er ámælisvert, að leiðsögumennska skuli ekki vera lögvernduð atvinnugrein með opinberum prófum, þar sem veruleg áherzla sé lögð á náttúruverndarsjónarmið.

Í greinargerðinni er ekki lagt til, að slíkir hópar útlendinga séu skyldaðir til að hafa íslenzkan og sérmenntaðan leiðsögumann. Af aðvörunarorðum hennar má þó ráða, að ástandið sé orðið svo alvarlegt, að slíkt komi sterklega til greina.

Gæzlumenn eru í manna nánastri snertingu við vandamálin. sem hér hefur verið lýst. Þeir dveljast sumarlangt í Landmannalaugum, Herðubreiðarlindum,. Nýjadal, Jökulsárgljúfrum, Skaftafelli, Lónsöræfum og á ýmsum öðrum stöðum með viðkvæmri náttúru.

Þess vegna leggur Dagblaðið til, að gæzlumenn verði teknir alvarlega og að þegar verði bundinn endi á núverandi stjórnleysi. Annars getur svo illa farið, að ekki verði aftur bætt.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið