Hætt að grilla á kvöldin

Punktar

Hugtök þjóðfundarins eru yfirgnæfandi sósíalistísk. Þar örlar varla á orðum kapítalismans, hvað þá frjálshyggjunnar. Samt var þjóðfundurinn vísindalegt úrtak okkar allra. Þetta þýðir, að þjóðin hugsar sósíalistískt. Vill, að stjórnlagaþingið semji stjórnarskrá við hæfi. Þetta á í einhverjum mæli við um kjósendur Sjálfstæðisflokksins eins og aðra. Fólk vill, að stjórnarskráin fjalli um dreifingu lífsgæðanna frekar en um öflun þeirra. Það hefur sett lokastrik neðan við tímabil frjálshyggju. Í yztu myrkur er horfið spakmæli Hannesar Hólmsteins um, að þjóðin vilji græða á daginn og grilla á kvöldin.