Beygja þarf íslenzka bankabófa til hlýðni. Þeir neita að láta afskriftir í þágu skuldara ná til ábyrgðarmanna skuldanna. Fara aftan að fólki eftir að hafa samið við það. Hæstiréttur úrskurðar glæpinn löglegan. Enda hefur hann bara áhuga á orðanna hljóðan, engan áhuga á réttlæti. Sennilega fer þetta mál til evrópskra dómstóla, sem ítrekað hafa rekið til baka orðhengilshátt Hæstaréttar. Guði sé lof fyrir afsal fullveldis, sem felst í að evrópskir dómstólar eru íslenzkum æðri. En ríkisstjórnin verður að finna leið til að kúga bankabófana til hlýðni, þótt bankaráðneytinu hafi ekki tekizt það.