Wikileaks er í vanda. Tölvupóstar frá utanríkisþjónustu Bandaríkjanna berast ótrúlega hægt inn á vefinn. Með sama áframhaldi tekur nokkur ár að koma þeim inn. Á sama tíma bíða aðrir tölvupóstar, sem einnig eru merkir. Þar á ofan hefur Julian Assange hótað að birta viðkvæma tölvupósta, ef hann verði ekki sjálfur látinn í friði. Tölvupóstar Wikileaks eru því orðnir verzlunarvara milli hans og Bandaríkjanna. Slíkt gengur auðvitað alls ekki. Assange hefur neitað að víkja til hliðar vegna prívatmála hans í Svíþjóð, sem gengur ekki heldur. Hvar endar Wikileaks og hvar byrjar Assange? Hvar eru mörkin?