Ástæðulaust er að láta forsætis njóta vafans um framtíð Íbúðalánasjóðs. Að baki hinnar hefðbundnu þoku í máli hans eru bankapúkar á sveimi. Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra telur framtíð sjóðsins trygga. En hún er utangarðs í ríkisstjórninni. Ýmsir hafa sagt, að almenn lán sjóðsins verði flutt yfir í bankana. Sem eru alfa og ómega vandræða okkar. Þeir settu ruglið af stað með undirboðum til að stúta Íbúðalánasjóði. Nú heimta þeir hækkun vaxta við flutning lána milli íbúða og milli manna. Þeir hafa svikið nýleg loforð og munu setja fólk á hausinn. Geir H. Haarde er þjónn bankanna, ekki fólksins.
