Gylfi, segðu af þér

Punktar

Bankarnir eru í steik. Bankastjórar hossa útrásarvíkingum og níðast á fólki. Þeir hrópa “bankaleynd”, ef spurt er, hvern djöfulinn þeir séu eiginlega að gera. Skilanefndir eru fullar af hræfuglum. Einn þeirra sendi sjálfum sér milljarðakröfur og samþykkti reikninga, sem hann sendi sjálfum sér. Fólk er gáttað á ruglinu. Sökudólgurinn er Gylfi Magnússon bankaráðherra. Hann var dreginn af götuvirkjum búsáhaldabyltingarinnar til að færa ríkisstjórninni traust. Honum hefur mistekizt fullkomlega. Bankarnir fara sínu fram eins og ekkert hafa í skorizt, fullskipaðir gráðugum hræfuglum. Gylfi, segðu af þér.