Finnur, Ásmundur og Birna eru fyrst og fremst sök Gylfa Magnússonar , sem ekki vann vinnuna sína. Bankaráðherrann samdi ekki frumvarp um bankastjóra. Siðareglur um hegðun bankastjóra urðu aldrei til. Fyrir bragðið haga þau sér eins og ekkert hafi gerzt og glæframenn megi aftur ríða röftum. Í frumvarpi Gylfa hefðu átt að vera ákvæði um fjarvist helztu óreiðumanna frá endurreisn fyrirtækja. Líka ákvæði frá Árna Páli Árnasyni um afskriftir gjaldeyrislána og verðbólginna lána almennings. Árni brást þannig séð, en Gylfi brást mest. Jóhanna Sigurðardóttir brást með því að tuða eins og hún sé bara áhorfandi.
