Bjarni Benediktsson fékk í samninganefndina fulltrúa, sem ákvað að styðja niðurstöðuna, friðarsamninginn. Bjarni fylgdi og þorri þingflokksins. Davíð og náhirðin gáfu út veiðileyfi á Bjarna. Siguðu mogga, amx og ínn á hann. Flótti brast í liðið. Bjarni treysti sér ekki til að fylgja eftir fyrri ákvörðun og fór að fela sig. Skoðanakannanir sýna þá útkomu, að tveir þriðju stuðningsmanna flokksins segja nei. Bara þriðjungur segir já. Dagar Bjarna eru því taldir sem formanns. Flokkurinn hverfur aftur til náhirðar Davíðs. Hrunflokkurinn mun því neita að gera upp IceSave og aðra öfgafortíð sína.