Gull og grænir skógar

Punktar

Af ummælum Össurar Skarphéðinssonar orkuráðherra má ráða, að hann hefur brenglaða sýn á stóriðju. Hann lýsir hrifningu á Kanada, þar sem stóriðju er boðið “gull og grænir skógar”. Hann virðist telja hagkvæmt að bjóða gull og græna skóga. Það gerðu Írar fyrir nokkrum áratugum, en ekkert stendur nú eftir af því. Þeir hafa hins vegar grætt á Evrópusambandinu, sem kemur í stað gulls og grænna skóga. Hugmyndafræði Össurar er hin sama og þeirra, sem segja, að kaup þurfi að vera sem allra lægst. Þannig verði erlend fyrirtæki dregin til landsins. Þetta er rangt viðhorf samfylkingarmanns.