Edward Wong segir í morgun í New York Times, að fangelsi Bandaríkjahers í Írak séu að springa. Öll mannvirki Saddam Hussein á þessu sviði eru enn í notkun og mörg fleiri. Abu Gharib er frægasta fangelsið, var notað til pyndinga á tímum Saddam Hussein alveg eins og á tíma bandaríska hersins. Þar eru 3160 manns. Stærsta fangelsið er Camp Bucca með 5600 föngum. Samtals eru tugþúsundir íraka í bandarískum fangelsum. Höfundurinn telur þessi fangelsi verða uppsprettu hryðjuverkamanna í framtíðinni. Honum var lofað að fá að skoða Abu Gharib fangelsið, en ekki var staðið við það.
