Guðni A. Jóhannesson lýgur

Punktar

Guðni A. Jóhannesson lýgur, að Orkustofnun hafi ekki veitt leyfi til rasks í Grændal. Leyfið snýst einmitt um eina eða tvær borholur og borunarvegi. Ef það er ekki jarðrask, þá heiti ég Davíð Oddsson. Orkumálastjóri er skæður siðblindingi, reynir að slíta friðinn um rammaáætlun orkuframkvæmda. Hefur líka veitt leyfi fyrir Gjástykki, Skaftá og Tungufljóti, óröskuðum svæðum, sem eiga að mæta afgangi. Landsþekktur vandræðamaður. Tapaði 6,5 milljörðum króna af opinberu fé á að hirða ekki um að hafa eftirlit með Landsneti. Stöðva verður terroristann, áður en hann veldur þjóð og náttúru meiri skaða.