Guð og Suðurlandsskjálftinn

Punktar

Sharon Stone leikkona sagði um daginn, að jarðskjálftarnir í Kína væru afleiðing af vondu karma. Kínastjórn hefði ekki verið nógu góð við Dalai Lama. Sjónvarpsprédikarinn John Hagee sagði, að flóðið í New Orleans væri afleiðing af skrúðgöngu homma þar í borg. Glenn Hoodle fótbotamaður sagði örkuml vera afleiðingu vondra verka í fyrra lífi. Trúarofstæki hefur leitt fólk út í að ýkja spakmælið um, að hver sé sinnar gæfu smiður. Menn halda fram firrum um, að náttúruhamfarir og slys eigi sér ekki náttúrulegar orsakir. Það óvænta sé afleiðing af reiði guðs. Suðurlandsskjálftinn?