Grunsamlegt lán norrænt

Punktar

Samkvæmt vefútgáfu Dagens Industri leiða Svíar samtvinnað norrænt lán til Íslands í tengslum við lán Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Grunsamlegt er, að ekki bara Norðurlönd standa að láninu. Samkvæmt blaðinu eru þar líka Bretland og Holland. Hvað eru þau lönd að gera í þessum norræna hópi? Aðferð að tjaldabaki til að kúga Ísland til að fallast á brezkar og hollenzkar kröfur vegna IceSave? Þetta eru ríkin tvö, sem hafa stöðvað afgreiðslu láns Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Allt þetta dæmi kringum sjóðinn ætti að hringja aðvörunarbjöllum.