Gremjan sýður undir niðri

Punktar

Ráðherramálið eflir andúð almennings á Alþingi og pólitíkusum. Starfsbræður fjögurra fyrrverandi ráðherra krunka þar saman um málaferli gegn þeim. Verst er leyndin. Almenningur fær ekki að sjá skjölin, sem liggja til grundvallar tillögu um ákæru á fjórmenningana. Allir þingflokkarnir eru sammála um að skilja þannig milli sín og þjóðarinnar. Fjórflokkurinn er orðinn fimmflokkur að Hreyfingunni meðtalinni. Elítismi þessa auma liðs hefur náð hæstum hæðum. Þjóðin hefur mátt sæta ótrúlegri misþyrmingu af hálfu elítunnar. Og fær þar á ofan ekki aðgang að upplýsingum um sökudólgana. Gremjan sýður undir niðri.