Forsíða
jonas.is
09.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

Punktar


    09.09.2010
    Hagvöxtur er marklaus
    Tölur um hagvöxt eru að mestu marklausar. Landsframleiðsla er reiknuð út eftir viðskiptum. Ef þú gerir við bíl vinar þíns, er það ekki hagsvöxtur. Ef bíllinn fer á verkstæði, er það hins vegar hagvöxtur. Skiptivinna mælist ekki í hagvexti. Sjálfbærni er núll í augum excel-tækna greiningardeilda. Í kreppu eykst samhjálp, skiptivinna og sjálfbærni. Landsframleiðsla mælist þá minni en í gervisveiflu fyrir hrun. Samt tala menn í alvöru um hagvöxt eða ekki hagvöxt. Eru þá að tala um landsframleiðsluna. Þetta dæmi sýnir vel, að hugtök, sem excel-tæknar nota, eru jafnan marklaus og þá einnig gagnslaus.

    09.09.2010
    Vatnajökuls-fasisminn
    Sagnfræðilaus stjórn Vatnajökuls fékk ótal athugasemdir við reglur hennar um þjóðgarðinn. Afhenti samt umhverfisráðherra í gær óbreytt plagg frá fyrra uppkasti. Engin mótrök koma þar við rökum gagnrýnenda. Gamla ruglið er bara endurútgefið. Enn er bannað að ríða Bárðargötu í Vonarstræti. Hvers vegna? Engin svör fást við því í nýju útgáfunni frekar en hinni fyrri. Ekki orð um, hvers vegna ekki megi ríða Vonarskarð. Aþþíbara. Reglurnar sýna umhverfis-fasisma, sem leikur lausum hala. Ráðherra á að rífa marklaust plaggið. Og skipa skárri nefnd til að smíða skynsamlegt plagg, sem farið verður eftir.

    09.09.2010
    Bjarni og Einar kátir
    Bjarni Benediktsson og Einar K. Guðfinnsson hreykja sér af, að fyrningarleið sé blásin af. Stórkarlalegur misskilningur gæzlumanna hagsmuna kvótagreifa. Þjóðin hefur ekki blásið af að eignast kvótann. Hefur bara fengið mótbyr. En hún mun sigra þá Bjarna og Einar. Það er bara marklaus hagsmunagæzlunefnd Jóns Bjarnasonar, sem vill áfram gefa kvótagreifum kvótann. Og ráðherrann er sjálfur marklaus. Málið fer væntanlega fyrir stjórnlagaþing, sem ákveður, að þjóðin eigi kvótann. En ekki umbjóðendur Bjarna Benediktssonar og Einars K. Guðfinnssonar. Til lengdar borgar sig ekki pólitískt að ögra þjóðinni.

    08.09.2010
    Ólafur Helgi vill hrista ykkur
    Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður vill afkastakerfi í sektum fyrir of hraðan akstur. Vill, að hluti sekta fari til rekstrar löggunnar. Hún sér þá sér hag í að sekta sem flesta. Eins konar vestræn útgáfa af rekstri lögreglu í þriðja heiminum. Hún er svo illa launuð, að hún lætur læða seðli í lófa sér fyrir meint umferðarlagabrot. Þetta heitir á alþjóðamáli að hrista vegfarendur. Tillaga Ólafs Helga um afkastakerfi í sektum er vestræn aðferð við að hrista vegfarendur. Ólafur Helgi hefur löngum verið refsingafíkinn. En vondandi fær fíknin ekki útrás í afkastakerfi við refsingar almennings.

    08.09.2010
    Að brenna kóran og biblíu
    Bókabrennur eiga sér vonda sögu. Leið hinna fordómafullu til að lýsa frati á skrifað orð. Hitler lét brenna bækur. Róttækur klerkur í Bandaríkjunum vill brenna kóraninn. Fullur fordóma eins og Jenis av Rana. En ástæðulaust er að banna honum að brenna kóraninn. Eða að banna einhverjum að brenna biblíuna. Eða Moggann. Fordómar eru leyfðir í vestrænu samfélagi svona almennt séð. Þjóðverjar eru þó enn viðkvæmir fyrir háværum nazisma. Út af fyrir sig er gott að ögra múslimum. Þeir brenna mannamyndir, en ganga svo af göflunum, þegar trúarrit þeirra er brennt. Hafa gott af að kynnast litrófi nútímans.

    08.09.2010
    Gerbreytt stjórnarskrá
    Stjórnlagaþingið verður erfitt. Þar verða gagnstæð sjónarmið. Þar verður fólk, sem styður Sigurðar Líndal í, að gamla stjórnarskráin dugi. Fáu þurfi þar að breyta. Aðrir vilja hugsa stjórnarskrána upp á nýtt. Hafa sett fram flott skipurit breytinga. Mér lízt vel á það. Er sammála breytingarsinnum. Stjórnarskráin þarf að taka betur á grundvallaratriðum. Svo sem trúfrelsi og skoðanafrelsi. Hún þarf líka að segja, að þjóðfélagið sé opið, ekki leyndó. Hún þarf að banna bankaleynd. Hún þarf að gefa þjóðaratkvæði fastan sess í stórpólitískum ákvörðunum. Allt slíkt kallar á gerbreytta stjórnarskrá.

    08.09.2010
    Steingrímur er óhæfur
    Steingrímur J. Sigfússon er óhæfur fjármálaráðherra. Hann er duglegur, en veit ekki bofs um siðferði. Um tíma átti fjármálaráðuneytið bankana, en lét undir höfuð leggjast að nota eignarhaldið. Steingrímur átti að hirða veðin í kvótanum fyrir ríkisframlagi til bankanna, en gerði ekki. Ef hann hefði gert það, ætti þjóðin kvótann, þyrfti ekki að rífast um fyrningu. Steingrímur átti að siðvæða yfirstétt bankana, en gerði ekki. Steingrímur átti í samráði við Gylfa Magnússon að semja skyndifrumvarp um afnám bankaleyndar, en gerði ekki. Hafði í tvö ár öll völd í landinu og klúðraði siðferðishlutverkinu.

    08.09.2010
    Burt með svikarana
    Fáum okkur nýja ríkisstjórn, sem efnir loforð Jóhönnu forsætisráðherra um þjóðaratkvæði um kvótann. Samningaleiðin fyrirhugaða er ekkert annað en óbreytt eignarhald kvótagreifa. Með viðbótarvæli til Alþingis um breytingu á stjórnarskrá. Alþingi mun ekki manna sig upp hér eftir frekar en hingað til. Fjórflokkurinn stendur ætíð vörð um sérhagsmuni með fulla vasa af fé. Munið Björn Val Gíslason og Lilju Rafney Magnúsdóttur, Svanfríði Jónasdóttur og Ólínu Þorvarðardóttur, fulltrúa sérhagsmuna. Standa með stjórnarandstöðunni að svikum fjórflokksins. Aðeins Hreyfingin neitaði að vera með óhæfunni. (Viðbót: Ólína er ekki í nefndinni, heldur Guðbjartur Han
    Greinasafn

    07.09.2010
    Ríkisstjórnin sveik þjóðina
    Ríkisstjórnin er búin að vera. Hún sveik þjóðina um kvótann. Jón Bjarnason valdi vini kvótagreifanna í sáttanefnd, sem hafnaði fyrningu kvóta. Hún sveik þjóðina um siðvæðingu banka. Önnur kynslóð bankstera eftir hrunið er nákvæmlega eins glæpahneigð og sú kynslóð bankstera, sem olli hruninu. Hún sveik þjóðina um afnám bankaleyndar. Í rauninni er ríkisstjórnin öll eins gefin fyrir leyndó og allar fyrri ríkisstjórnir hafa verið. Hún er þar á ofan að setja upp ríkisritskoðun fjölmiðla. Enginn munur er á þessari aumu ríkisstjórn og þeirri ríkisstjórn, sem hrunverjar hefðu sjálfir myndað.

    07.09.2010
    Hundrað milljarða lagatæknir
    Árni Páll Árnason lagatæknir samdi eitt illræmdasta lögfræðiálit sögunnar. Við hlið Mishkin-álits Tryggva Þórs Herbertssonar, sem er illræmdasta excel-álit sögunnar. Árni Páll sagði lög heimila, að Íbúðalánasjóður lánaði bönkum hundrað milljarða ofan á húsnæðislánin. Allt það fé glataðist skömmu síðar, þegar bankarnir fóru á hausinn. Íbúðalánasjóður tapaði öllum þessum hundrað milljörðum. Ríkissjóður neyðist til að bæta það sjóðnum. Á kostnað barna þinna og barnabarna. Samt er Árni Páll í ríkisstjórn og þar á ofan orðinn bankaráðherra. Spilling bankstera verður enn meiri en hjá mislukkuðum Gylfa.

    07.09.2010
    Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd
    "Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd", gargar Höskuldur H. Ólafsson bankster, sakaður um svindla milljörðum í þágu Jóns Ásgeirs. "Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd", gargaði Ásmundur Stefánsson bankster, sakaður um stuðning við kennitölflakk gangstera. "Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd" gargaði Sigurjón P. Árnason bankster, þegar hann vaknaði á morgnana. Hver kynslóð bankstera á fætur annarri þylur bankaboðorðin þrjú. Þau voru alfa og ómega hrunsins. Eru alfa og ómega eftirleiksins, þegar vangeta nýrrar stjórnar er orðin öllum ljós. Heimtum pólitíkusa, sem þora að skera upp bankaleyndina.

    07.09.2010
    Wahab-ítarnir eru komnir
    Múslimar á Íslandi hafa of lengi beðið eftir lóð undir mosku. Eru hófsamir, flestir frá Palestínu. Frábær viðbót við litrófið í samélaginu. Eiga að fá stax sína lóð. En nú hafa komið til sögu ríkir arabar frá Sádi-Arabíu. Tengjast ekki félagi múslima. Hyggjast setja upp madrössu í Ými í Öskjuhlíð. Þar verður kenndur wahab-ismi. Róttæk íslam frá Sádi-Arabíu, svartasta afturhaldslandi heims. Þar ríkir kvenhatur, þær mega ekki einu sinni keyra bíl. Þaðan koma peningarnir í madrössur í Pakistan, sem rækta terrorista. Þaðan kom Osama bin Laden. Pössum okkur á wahab-ítum með fullar hendur fjár.

    07.09.2010
    Berglaug í örbylgjunni
    Frú Berglaug er snyrtilega innréttuð matstofa í gömlu hornhúsi við Laugaveg 12. Gólfin og stiginn eru flott og útsýni er fínt af neðri hæð á regndrepa túrista á Laugavegsvafri. Þjónusta er notaleg, en músíkin er of hátt stillt. Matseðill er stuttur og ferðamannalegur og maturinn er fallega upp settur. Þarna er kjötsúpa og plokkfiskur og girnilegt humarsalat (1690 kr). Ýmislegt var gott í hráefnum, humar fínn og hráskinka frábær. En matreiðslan var sumpart úti að aka. Skötuselur og kartöflur (2290 kr) úr frysti og örbylgju voru engin draumafæða. Betri matstaðir eru til á svæðinu, sem betur fer.

    06.09.2010
    Margt mikilvægt vantar
    Hér vantar lög um, að heilbrigðar leikreglur gildi í fjármálum. Um afnám bankaleyndar. Að sjóðfélagar stjórni lífeyrissjóðum. Að bankar hætti að hossa fjárglæframönnum. Að bankastjórar komi ekki úr röðum bókhaldstækna, bankatækna, lagatækna og excel-tækna. Burt með alla þessa siðlausu tækna, sem settu þjóðfélagið á hausinn. Hér vantar, að ráðherrar byrji að kynna sér skýrslu rannsóknarnefnar Alþingis. Hafi hana næst hjartanu í mannaráðningum og anarri hegðun sinni. Því miður haga ráðherrarnir sér eins og þeir séu í ríkisstjórn hjá Davíð eða Halldóri, Geir eða Ingibjörgu. Eða Tryggva Þór.

    06.09.2010
    Fjölmiðlar eru geldir
    Í gamla daga voru ritstjórar og forstjórar fjölmiðla jafnsettir, höfðu hvor sitt svið. Forstjórinn var þó oftast "primus inter pares", því að peningar hafa tilhneigingu til að vera æðstir. Þannig var það mína starfsævi. Fyrsta áratug þessarar aldar komu til sögunnar útgáfustjórar, sem voru ritstjórum æðri. Svipað gerðist áður í Bandaríkjunum. Afleiðingin sést í versnandi fjölmiðlum, meiri hugsun um fjármál, hræðslu við dýra rannsóknavinnu. Þetta kerfi einkennir stóru fjölmiðlana á Íslandi og gelti þá sem fjölmiðla. Þeim ber þó að þjóna notendum fremur en eigendum. Annars verða þeir áfram geldir.

    06.09.2010
    Hjörleifshöfði og Landeyjarhöfn
    Einu sinni var Hjörleifshöfði úti í sjó og gott hafnarstæði var undir honum. Katla sá svo um að færa ströndina utar. Hjörleifshöfði stendur núna langt inni í landi og þar verður aldrei aftur hafnarstæði. Vestan höfðans er hin nýja Landeyjarhöfn og bíður eftir síðbúnu Kötlugosi. Í samanburði við Kötlu eru hræringar í Eyjafjallajökli bara barnaleikur. Þegar hún gýs, fyllist höfnin af leir og ströndin færist utar. Þá felst hin dæmigerða Kleppsvinna í að halda höfninni opinni. Datt engum í hug, að Katla mundi færa ströndina út fyrir Landeyjarhöfn? Eins og hún gerði áður við höfnina hjá Hjörleifshöfða.

    06.09.2010
    Sjá goðumlíka glæpamenn
    Höskuldur H Ólafsson bankastjóri hefur ekki hugmynd um siðferði. Ekki frekar en forveri hans hjá Arion-banka. Ekki frekar en aðrir þeir, sem hafa verið bankastjórar eftir hrun. Í skjóli skilningsleysis Steingríms J. Sigfússonar og Gylfa Magnússonar. Allir bankastjórarnir ögra þjóðinni með því að mylja undir mestu fjárglæframenn landsins umfram aðra. Þeir eru siðlausir, því að þeir eru bankamenn og siðferði er þeim lokuð bók. Ekki má ráða bankamenn sem bankastjóra, heldur á að setja þar inn heimspekinga og siðfræðinga. Þar á að vera fólk, sem fær enga glýju í augu við að horfa á goðumlíka stórglæpamenn.

    06.09.2010
    Fullyrðing um einelti
    Hef ekki séð dæmi um einelti fjölmiðla í garð þjóðkirkjunnar, sem Örn Bárður Jónsson prestur fullyrti. Þyrfti fyrst að sjá eitt dæmi. Enn síður sé ég, að fjölmiðlar hafi fjallað óvandað um siðferðisbrenglun kirkjunnar. Hún á bara að passa sig betur. Örn Bárður getur sagt upp fjölmiðlum öðrum en Ríkinu og býður því fávíslegan brandara um það efni. Menn geta hafnað fjölmiðlum rétt eins og ríkiskirkjunni. Fjölmiðlar hafa flutt eðlilegar skoðanir um, að Karl biskup Sigurbjörnsson segi af sér. Hefur höndlað siðferðisbrenglun kirkjunnar heimskulega og hrakið fólk burt. Örn Bárður er bara alls ekki með á nótunum.

    Næsta síða

Leitarskilyrði
Fjölmiðill: punktar

Leitin skilaði:
8700 greinum.

Möguleikar á röðun
Fyrirsögn í stafróðsröð
Elztu greinar fyrst
Yngstu greinar fyrst