Ásbjörn Óttarsson kvótagreifi og þingmaður ætti að setja upp námskeið fyrir listamenn. Hann vill taka af þeim ríkisstyrkinn, en getur auðvitað boðið þeim annað í staðinn. Hann getur haldið námskeið fyrir listamenn og kennt þeim hans eigin aðferðir í viðskiptum. Þeir setji sig í fyrirtæki eins og Ásbjörn, borgi sér ógrynni milljóna í arð, komi arðinum undan skatti og láti fyrirtækið fara á hausinn. Síðan geta þeir farið á þing eins og Ásbjörn og gætt hagsmuna kvótagreifa og annarra tilfallandi hagsmuna. Ásbjörn er fagurt fordæmi. Honum ber siðferðisskylda til að útbreiða fagnaðarerindi Flokksins.
