Visir.is segist vita, að ýmsir pólitíkusar, jafnvel ráðherrar, hafi fengið kúlulán í bönkunum fyrir hrunið. Við vissum um Þorgerði Katrínu. Einnig eru þarna forsvarsmenn ýmissa lífeyrissjóða. Sé það satt, fer ég að skilja sumt í pólitíkinni og í sjóðunum. Upplýsingar um sumt af þessu eru komnar til rannsóknarnefndar Alþingis, en sumt er enn falið í Luxemborg. Vonir standa til, að hægt verði að opna fyrir bankaleyndina þar í landi. Á endanum þurfa margir trúnaðarmenn fólksins í landinu að svara þungum siðferðisspurningum. Þetta er græðgisvæðingin í sinni tærustu mynd: Allt fyrir ekkert.