Gráðuga félagið

Punktar

Eitt gráðugasta félag græðgistímans var N1, í eigu Engeyjarættarinnar og Bjarna vafnings Benediktssonar. Upphaflega var það olíufélag. Keypti síðan allt sem hreyfðist til að drepa samkeppni og fá einokun. Varahlutaverzlun, dekkjaverkstæði, smurstöðvar, jafnvel sjoppur út um öll krummaskuð. Vildi gleypa heiminn. Svo lenti N1 sjálft í súpunni og fór á hausinn í glórulausum rekstri að hætti útrásarvíkinga. Fráleitt er, að fyrri eigendur fái að reka það áfram. Búta þarf fyrirtækið niður í rekstrareiningar og selja þeim, sem bezt bjóða. Alveg eins og búta þarf niður Haga og selja í rekstrareiningum.