Þótt ég sé andvígur niðurstöðu stjórnlagaráðs, styð ég ferlið að baki. Tel, að ferli ráðsins sé til pólitískrar fyrirmyndar. Þjóðin vantar ekki kríur til að garga í hálftíma hálfvitanna á Alþingi Þjóðin þarf þingmenn, sem vinna saman í einlægni og ná sameiginlegri niðurstöðu þvert á flokkalínur. Ferli getur oft verið mikilvægara en útkoma. Lýðræði er ferli, sem kemur að gagni, burtséð frá ákvörðunum lýðræðis. Ég er eindregið andvígur uppkastinu að stjórnarskrá sem niðurstöðu, en ég er jafn eindregið fylgjandi ferli ráðsins. Tel, að við þurfum að fá slíkt ferli í pólitíkina á Alþingi.