Gömul þekking hverfur

Punktar

Í gamla daga kunni borgin skipulag. Til dæmis hugtakið vista. Ægisgata stefnir á Kristkirkju og Suðurgata stefnir á Keili. Skipulagsþekkingin glataðist og nú eyðileggur íbúðaturn vista niður Frakkastíg. Áður var stíll yfir Reykjavík. Nú er hann brotinn á bak aftur með háum turnum og steypuskrímslum út í lóðamörk. Gamli bærinn leikur á reiðiskjálfi í sprengingum fyrir tveggja gólfa kjallara. Á Bráðræðisholti hristast gömlu húsin í sundur. Ekki er tekið tillit til fólks. Barizt er um gömlu bílastæðin, því að nýbyggingar ofan í grónum hverfum gera ekki ráð fyrir nýjum bílum. Ofstæki hins bíllausa lífsstíls er harður húsbóndi.