George W. Bush Bandaríkjaforseti segir stríðið við Írak vera kostnaðarins virði. Hann er líklega að hugsa um þær 200 billjónir króna, sem talið er, að stríðið hafi kostað. Kannski líka um 4.000 hermenn, sem hafa fallið og 30.000, sem hafa slasazt. En hann er ekki að hugsa um kreppuna. Ekki heldur um mannfall Íraka, sem nú er frá 350.000 manns upp í 1.000.000 manns. Mikið af því eru óbreyttir borgarar. Og hver er gróðinn á móti. Gereyðingarvopn voru ekki gerð upptæk. Al Kaída starfar í Írak, sem það gerði ekki fyrir stríð. Bandaríkin stela einhverju af olíu, sem segir lítið upp í kostnað.
