Hafnarfjörður hefur lengi búið við betri skilyrði en önnur sveitarfélög. Þar er gamalgróin álbræðsla, sem borgar mikið af opinberum gjöldum til bæjarins. Samt er Hafnarfjörður á hausnum, lítið skár staddur en Reykjanes, sem vill feta sömu álbræðslubraut. Hafnarfjörður gat í vikunni ekki endurgreitt fjögurra milljarða króna lán Depfa banka. Eftir átta mánuði þurfa Gaflarar að endurgreiða sama banka fimm milljarða. Þannig rambar bæjarfélagið á barmi gjaldþrots, þrátt fyrir áratuga góðæri. Máltæki segir, að á misjöfnu þrífist börnin bezt. Hafnarfjörður er dæmi um, að góðæri er ekki allra meina bót.