Gnarrinn grínast stöðugt

Punktar

Gnarrinn heldur áfram að gera grín að kjósendum sínum. Réði framkvæmdastjóra úr skúffufyrirtækinu Magma sem forstjóra Orkuveitunnar. Áður búinn að ráða yfirlagatækni Lýsingar, sem árum saman braut lög á skuldurum. Gnarrinn ákvað jafnframt, að starfslok fyrrum forstjóra skuli vera leyndó. Vonandi kemur kjósendum Gnarrsins ekki á óvart, að rafmagnsreikningar Orkuveitunnar hækka 20% um næstu mánaðamót. Tuttugu prósent. Það er ekki fyrsta hækkun Gnarrsins og verður ekki sú síðasta. Handvaldir villimenn hans hjá Orkuveitunni telja tilgang notenda vera að borga tap af útrásum og að fjármagna nýjar útrásir.