Ég get tæpast talizt gjaldþrota og dettur mér þó ekki í huga að borga fyrir baðstofu í World Class. Hún kostar rúmlega 180 þúsund krónur á ári. Ég tel slíkt vera bruðl með peninga í stíl ársins 2007. Þegar ég var ungur, átti ég svarthvíta sjónvarpið, unz það dó, tveimur árum eftir komu litasjónvarps. Notaðar VW-bjöllur keypti ég á bílaleigum og borgaði út í hönd. Því skil ég ekki manninn, sem bjó til bíómynd um hrunið. Hann segist vera gjaldþrota, en kaupir samt baðstofupláss í World Class fyrir 180 þúsund krónur. Hann hlýtur að vera bilaður. Það er einmitt þetta STRAX-hugarfar, sem eyðilagði þjóðina.
