Gerólíkar niðurstöður

Greinar

Gífurlegur munur reyndist vera á niðurstöðum skoðanakannana Vísis og Dagblaðsins um úrslit borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík. Áhugamenn um skoðanakannanir hafa ástæðu til að hugleiða þennan mun, því að hann er langt umfram eðlileg frávik.

Forvitnilegt verður að sjá, hvor niðurstaðan verður nær hinum raunverulegu úrslitum, sem koma í ljós aðfaranótt næsta mánudags. Þá verður fyrst unnt að vega og meta kosti og galla hinna mismunandi aðferða, sem blöðin beittu.

Í Dagblaðinu hafði Sjálfstæðisflokkurinn 52% af gildum atkvæðum, Alþýðubandalagið 23%, Alþýðuflokkurinn 15% og Framsóknarflokkurinn 10%. Þetta jafngildir 8 borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, 4 fulltrúum Alþýðubandalags, 2 fulltrúum Alþýðuflokks og 1 fulltrúa Framsóknarflokks.

Í Vísi. hafði Sjálfstæðisflokkurinn stuðning 47,5% hinna spurðu, Alþýðubandalagið 10,6%, Alþýðuflokkurinn 9,2% og Framsóknarflokkurinn 4,3%. Þar við bættust svo 28,4%, sem ætluðu að skila auðu, voru óákveðnir eða vildu ekki svara.

Ef tölur Vísis eru gerðar sambærilegar tölum Dagblaðsins með því að miða við gild atkvæði, kemur í ljós 66% stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn, 15% stuðningur við Alþýðubandalag, 13% stuðningur við Alþýðuflokk og 6% stuðningur við Framsóknarflokk.

Hvort sem notaðar eru hinar raunverulegu tölur Vísis eða hinar sambærilegu, er niðurstaðan hin sama: Samkvæmt Vísi fær Sjálfstæðisflokkurinn 11 borgarfulltrúa, Alþýðubandalagið 2, Alþýðuflokkurinn 2 og Framsóknarflokkurinn engan.

Auðvitað er verulegur munur á því, hvort Sjálfstæðisflokkurinn fær 8 fulltrúa eða 11, Alþýðubandalagið 4 fulltrúa eða 2 og Framsóknarflokkurinn 1 fulltrúa eða engan.

Einkennilegt er, að í Vísi er fólki skipt í flokka og síðan í sjö hópa annars vegar eftir aldri og hins vegar eftir búsetu. Samkvæmt því virðast 20% framsóknarkvenna vera á áttræðisaldri og 0% búa í Árbæjarhverfi!

Hvort tveggja byggist á úrtaki einungis fimm kvenna. Dagblaðsmönnum þykir þetta benda til, að félagsfræðingar Vísis skilji ekki takmörk skoðanakannana.

Dagblaðið hefur alltaf haft mesta trú á hinu hreina lögmáli óvissunnar í stærðfræðinni og reynt að nálgast það í könnunum sínum. Dagblaðið hefur forðast svonefndar kvótakannanir, sem margir félagsfræðingar beita, en verða því hættulegri sem úrtakið er minna.

Segja má, að hugleiðingar sem þessar séu ekki tímabærar. Auðvitað er bezt að bíða úrslita borgarstjórnarkosninganna sjálfra. Matið, sem þá verður lagt á skoðanakannanir, hlýtur að ráða miklu um þróun þeirra í náinni framtíð.

Á mánudagsmorgni verður unnt að sjá, hvort Sjálfstæðisflokkurinn fær átta menn Dagblaðsins eða ellefu menn Vísis, hvort Alþýðubandalagið fær fjóra menn Dagblaðsins eða tvo menn Vísis og hvort Framsóknarflokkurinn fær einn mann Dagblaðsins eða engan mann Vísis!

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið