“Vertu þægur, annars kemur Gengis Kan” sögðu mömmurnar við synina. Gengis Kan stór-kan var lengi talinn eitt mesta illmenni Sturlungaaldar. Menn eru að komast á aðra skoðun vegna fornra skjala frá Mongólíu. Jack Weatherford sagnfræðingur hefur skrifað metsölubókina Genghis Khan. Þar lýsir hann áður óþekktum hliðum á fræga fólinu. Gengis Kan bannaði pyndingar. Slátraði að vísu aðalsmönnum, en lét fólk að mestu í friði. Eins og Napóleon safnaði hann um sig frábærum herforingjum úr alþýðustétt. Hann setti trúfrelsi í ríki sínu og afnam vörugjöld. Mongólía varð víðáttumesta ríki sögunnar.
