Geirfinnsmálið að baki

Greinar

Gott er að vera laus við Geirfinnsmálið. Hinn óhugnanlegi skuggi þess hefur myrkvað þjóðfélagið allt of lengi. Líkamsmeiðingar og manndráp eru alvarlegri glæpir en fjárglæfrar, sem ekki beinast gegn lífi manna og limum. Schütz rannsóknarlögreglumaður hefur rétt fyrir sér, er hann segir mál þetta hafa valdið öryggisleysi hjá þjóðinni.

Löggæzlumenn hafa nú lýst í smáatriðum, hvernig afvegaleitt fólk varð Geirfinni að bana, að því er virðist út af misskilningi og stundargremju. Ber þessari lýsingu saman við fréttir þær, er lesendur Dagblaðsins hafa séð í blaði sínu undanfarna mánuði. Enda kemur engum niðurstaða rannsóknarlögreglunnar á óvart.

Mikil vinna og mikill dugnaður liggur að baki niðurstöðunnar. Einkum hefur hingaðkoma Schütz reynzt gagnleg. Hann er kunnugur öllum hnútum á þessu sviði í stórborgaþjóðfélagi nútímans og byggir á langri reynslu, sem íslenzkir starfsbræður hafa ekki haft tök á að afla sér, fyrr en núna.

Yfirvöld dómsmála tóku laukrétta ákvörðun, þegar þau ákváðu að reyna að fá Schütz til liðs við sig. Nú er spurningin sú, hvort ekki sé rétt að reyna að hamra járnið meðan það er heitt og fá Schütz til aðstoðar við uppbyggingu hinnar fyrirhuguðu rannsóknarlögreglu ríkisins.

Nokkurs misskilnings virðist gæta hjá Schütz, er hann telur sérstaka ástæðu til að benda á, að hvorki standi mafía né fjármálamenn að baki drápsmanna Geirfinns. Ekki er ástæða til að ætla, að almenningur hafi talið, að svo væri, enda hafa fréttir fjölmiðla ekki gefið tilefni til slíkra hugleiðinga.

Raunar hafa blaðafréttir af þessu máli verið merkilega nákvæmar. Þær eru gott dæmi um stóraukna getu dagblaða við að fræða almenning um alvarleg mál, þrátt fyrir ótal hindranir. Þessi geta kemur einnig fram á öðrum sviðum, svo sem í skrifum um ýmis fjárglæframál, alveg óskyld Geirfinnsmálinu.

Rannsóknarlögreglumenn kvarta um, að þessar nákvæmu fréttir hafi spillt fyrir rannsókn málsins. Ekki verður þó séð, að fréttirnar hafi hindrað, að rannsóknin leiddi til niðurstöðu. Embættismenn vilja bara helzt vinna bak við lokaðar dyr. Þeim finnst óþægilegt, að verið sé að horfa á þá meðan þeir eru að vinna. Af þeim ástæðum, en ekki efnislegum, eru þeir dálítið gramir fjölmiðlum.

Geirfinnsmálið hefur vakið athygli manna á þeim erfiðleikum, sem saklausir menn geta lent í, ef þeir verða fórnardýr meinsæris. Þeir urðu að sæta gæzluvarðhaldi og bæði þeir og aðstandendur þeirra urðu að sæta margvíslegum öðrum persónulegum óþægindum. En sennilega er erfitt að koma í veg fyrir slíkt, þegar meinsæri er sérstaklega vel undirbúið eins og var í þessu tilfelli.

Blaðamenn, rannsóknarlögreglumenn og menn almennt fagna því að hafa Geirfinnsmálið að baki. Hvarvetna bíða önnur og aðkallandi verkefni, sem hafa fallið í skugga Geirfinnsmálsins. En menn munu þó seint gleyma því máli, bæði vegna hryllings þess og lærdómanna, sem ótal aðilar geta af því dregið.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið