Geir var ömurlegur

Punktar

Man eftir Geir eins og hann hafi gerzt í gær. Sífellt í sjónvarpi að segja okkur, að erfiðleikarnir væru að minnka. Þegar þeir voru að aukast. Að segja okkur að halda ró okkar, þegar hengiflugið blasti við. Í minni mínu er Geir Haarde maðurinn, sem vissi lengi um óhjákvæmilegt hrun. Að minnsta kosti hálfu ári áður en það gerðist. Allan tímann laug hann þindarlaust og átti erfitt með að taka ákvarðanir. Í sjálfu hruninu ákvað hann að taka innlenda lánardrottna bankanna fram fyrir aðra borgara. Það var svívirðilegt. Allur hrunsferill Geirs var ömurlegur. Það er skrípó, að hann kalli sig bjargvætt.