Ríkisstjórnin hefur undanfarnar vikur ráðizt gegn kreppunni þvert gegn ráðum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Hefur einkum reynt að verja hag annarra en hlutafjáreigenda. Hún hefur víkkað og eflt hlutverk Íbúðalánasjóðs, sem Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hatar. Hún hefur þjóðnýtt alla banka landsins. Hún hefur ítrekað lofað að láta kreppuna koma sem minnst niður á þeim, sem minnst mega sín. Það eru skuldunautar, lífeyrisþegar og sparifjáreigendur. Þetta eru þeir, sem Alþjóða lífeyrissjóðurinn vill að beri þyngstar byrðar. Himinn og haf er milli Geirs Haarde og Dominique Strauss-Kahn sjóðsstjóra.