Erlendir hagfræðingar eru smám saman að komast á þá skoðun, að kreppan á Íslandi sé heimatilbúin. Hún stafi af aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans. Ríkisbankarnir hafi verið einkavinavæddir til pólitískra gæludýra, sem kunnu ekki með fé að fara. Þeir hafi breytt ríkisbönkunum í vogunarsjóði og kollsiglt íbúðalánum. Ekkert hafi verið gert til að stemma við þessu. Og ekki heldur neitt til að milda afleiðingarnar. Menn á borð við Robert Wade prófessor gagnrýna Geir Haarde og Davíð Oddsson. Skrifa um þá í Financial Times sem analfabeta í hagfræði og raunar sem hreina bjána.
