Gegnsæi stjórnlagaráðs

Punktar

Margir tala þessa dagana niður til Stjórnlagaráðs og segja umboð þess harla lélegt. Við því er ekkert að segja. Ef fundum ráðsins verður sjónvarpað og aðgangur opinn, munu viðhorfin fljótlega breytast. Þá mun koma í ljós, að þorri fulltrúanna starfar af heilindum. Gerólíkt því, sem við þekkjum frá Alþingi. Ef tuttugu af fulltrúum ráðsins verða síðan sammála um tillögu til Alþingis, er björninn unninn. Kjósendur munu taka því fagnandi að fá að kjósa um nýja stjórnarskrá. Sjálfstæðisflokkurinn hefur áratugum saman reynt að hindra breytingar. En nú standa vonir til, að hann missi tök á málinu.