Ef væntanlegt stjórnlagaráð fer að vilja þjóðfundarins, mun Flokknum og Framsókn mislíka útkoman. Hagsmunaaðilar munu kvarta og kveina. Eina leiðin til að fremja vilja þjóðfundarins er að bera tillögu stjórnlagaráðs undir þjóðaratkvæði. Áður en Alþingi tekur til við að skoða málið. Annars lendir málið bara í þessum venjulega gamla þvælingi hagsmunaaðila. Nákvæmlega eins og þjóðareign á kvóta. Jón Bjarnason brá fæti fyrir hana með því að skipa sáttanefnd hagsmunaaðila. Slíkar stofnanir geta ekki sniðið helztu innviði samfélagsins. En þjóðfundur + stjórnlagaráð + þjóðaratkvæði geta það vel.