Mesta stórfrétt áramótanna fólst í 450 milljörðum, sem Kaupþing veitti í lán á síðasta stjórnarfundi sínum fyrir hrun. Þetta er geggjuð tala, sem fór í tómt rugl, lán til rússnesks mafíustjóra og essreka úr eyðimörk Arabíu. Sumt af þessu hafa verið mútugreiðslur fyrir þáttöku í að blása upp eignablöðru gjaldþrota banka. Glæpur þessara 450 milljarða er yfirgengilegur. Af hverju sitja bankabófar og útrásarbófar ekki í gæzluvarðhaldi? Af hverju er ekki búið að dæma 20-30 verstu bófana og endurskoðendurna í lífstíðar fangelsi? Linkind kerfisins gagnvart geggjuðu glæparugli veldur mestu um reiði fólks.