Einar Ágústsson utanríkisráðherra hefur lagt til, að varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hverfi úr landi í áföngum, en áfram verði hér hreyfanleg flugsveit með flugvirkjum og löggæzlu.
Í tillögu hans felst athyglisverð þversögn. Varnarliðið hverfur náttúrlega ekki úr landi,.ef nokkur hundruð manna lið verður hér áfram. En ef til vill telur Einar það vera grundvallarbreytingu að klæða liðið úr einkennisbúningum og í Gefjunarföt.
Ekki kemur fram í tillögu hans, hve langan tíma þessi breyting eigi að taka, né hve mikil fækkun í liði Bandaríkjamanna felist í henni. Má þá reikna með, að hún geri ráð fyrir fámennara liði en 1900 mönnum, úr því að fyrri hugmyndir framsóknarmanna um þann fjölda fengu ekki náð hjá ráðamönnum Alþýðubandalagsins.
Tillaga Einars hlýtur að freista ráðamanna Alþýðubandalagsins. Enda hafa þeir ekki hafnað henni, heldur tekið hana til vinsamlegrar athugunar. Þannig þjónar tillagan nokkuð vel meginhlutverki sínu, – að halda ríkisstjórninni saman.
Meiri vafi leikur á gildi tillögunnar á öðrum sviðum. Hún hefur dýpkað ágreininginn innan Framsóknarflokksins. Hinar hörðu umræður um hana í framkvæmdastjórn flokksins, svo og hjáseta sumra og fjarvera annarra í atkvæðagreiðslunni um hana eru dæmi um þetta. Ennfremur undirskriftir margra kunnra framsóknarmanna undir ávarp “Varins lands” í trássi við ályktun meirihluta framkvæmdastjórnarinnar.
Hugsanlegt er, að ráðamenn Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna geti fallizt á, að lausn Einars veiki ekki alvarlega hernaðareftirlit og öryggisviðbúnað á Norður-Atlantshafi eða telji hana að minnsta kosti betri lausn en enga.
Hins vegar virðist í fljótu bragði útilokað, að tillagan þjóni hinum sérstöku varnar- og öryggishagsmunum Íslands, sem fara ekki fyllilega saman við eftirlitshagsmuni Atlantshafsbandalagsins. Við núverandi kringumstæður er vafasamt, að öryggis Íslands sé fyllilega gætt, og enn ótrúlegra er, að helmingi fámennara varnarlið geti valdið því.
Efasemdir uppreisnarliðsins í Framsóknarflokknum fara saman við efasemdir stjórnarandstöðunnar og hins mikla fjölda manna, sem hefur skrifað undir áskorun “Varins lands” um, að varnarliðið verði hér áfram enn um sinn. Þeir vilja ekki, að öryggi landsins sé teflt í hættu til þess eins að halda ríkisstjórninni saman.
Þessi ríkisstjórn er þegar orðin þjóðinni dýrkeypt, einkum í efnahagsmálum og fjármálum. Fari nú svo, að Einari og Alþýðubandalaginu takist að bræða saman málamiðlun, byggða á tillögu Einars, sem Bandaríkjastjórn telji, sér nauðsynlegt að samþykkja, falla fyrri syndir ríkisstjórnarinnar gersamlega í skugga hinnar nýjustu
Jónas Kristjánsson
Vísir