Gamla fólkið er mesta ógnun við framtíð Evrópu. Því fjölgar svo, að árið 2050 mun vinnandi fólk ekki lengur geta staðið með sköttum undir kostnaði við það. Lífeyrir Evrópumanna er ríkisrekinn og yfirleitt fjármagnaður með sköttum, en ekki með lífeyrisgreiðslum fólksins sjálfs eins og er hér á landi að mestu. Spáð er, að helmingur íbúa Evrópu verði 65 ára eða eldri árið 2050. Eigin uppsöfnun á lífeyri verður sem fyrst að leysa af hólmi gegnumstreymi fjár frá ungum til gamalla. Annars hrynur annað hvort velferð almennings eða efnahagur aðildarríkja Evrópusambandsins. (DV)
