Gagnaver eru álbræðslum fremri

Punktar

Álbræðsla er frumframleiðsla eins og landbúnaður og sjávarútvegur. Höfum meira en nóg af slíkum. Þær eru þriðja heims atvinnuvegur. Við þurfum hins vegar fyrsta heims atvinnuvegi. Bezta dæmið um þá eru gagnaver, sem nota mikla orku og 5-10 terabita kapalstrengi til útlanda. Slíkir ofurstrengir eru bylting í sæstrengjum. Með þeim fáum við tugi gagnavera inn í landið. Þau nota mun minni orku en álbræðslur, borga miklu hærra orkuverð og einkum miklu hærra kaup. Gagnaver eru einn helzti vaxtarbroddur nútímans. Þau kalla á vel menntað tölvufólk og hafa margfeldisáhrif í tölvubransanum.