Gæta hagsmuna auðmanna

Punktar

Fjárhagslega var Sjálfstæðisflokkurinn pólitísk framlenging bankabófa og er framlenging kvótagreifa. Fyrir hrun fjármögnuðu bankar Flokkinn, einkum Landsbankinn. Frægt af milligöngu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Flokkurinn fær nú peningana frá kvótagreifum, sem líka halda uppi Mogganum. Flokkurinn er pólitískur armur auðmanna eins og Íhaldsflokkur Bretlands. Sá fær 51% tekna sinna frá fjármálafyrirtækjum í City. Ástandið er mun verra í Bandaríkjunum, þar sem forsetinn og allt þingið ná kjöri fyrir velvild fjármagnsins. Lítið fer fyrir lýðræði, þegar flokkar gæta hagsmuna auðmanna á kostnað fólksins.