Gæludýravæðing fjármálanna

Punktar

Allir stjórnmálaflokkarnir tóku þátt í aðför stjórnarinnar að fagmennsku í nýju bönkunum. Engum flokki datt í hug að velja Þorvald Gylfason, Guðmund Ólafsson, Ragnar Önundarson, Vilhjálm Bjarnason o.s.frv. Allir tilnefndu þeir sín pólitísku kvígildi, frá lögmönnum yfir í bændur. Vinstri grænir fengu þrjá fulltrúa við trogið, Framsókn tvo og Frjálslyndir einn. Þar með er stjórnarandstaðan orðin samsek gæludýravæðingu fjármála, sem er ekki skárri en fyrri einkavæðing. Við þekkjum gæludýravæðinguna frá því í gamla daga. Ekkert hefur breyzt við hrunið, innræktaða spillingin er söm og áður.