Fyrsta lotan fór vel

Punktar

Ísland stóð sig vel í fyrstu lotu varnar gegn kreppunni. Stýrivextir voru hækkaðir. Hluti af lækkun krónunnar gekk til baka. Verðbólgan verður minni en ætlað var. Bankar og útrásarfyrirtæki riða ekki til falls. Nú bíða menn eftir næstu lotu. Hún byrjar í Bandaríkjunum, þar sem verðmæti fasteigna lækkar enn, í mörgum tilvikum niður fyrir skuldir. Meðallækkun fasteigna þar nemur rúmlega 10%. Unnvörpum verða fjölskyldur gjaldþrota þar á næstu mánuðum. Hér hafa fasteignir verið ofprísaðar síðan 80%-90% lánin voru tekin upp í góðærinu. Hætt er við, að margir lendi í vandræðum vegna þess.