Jón Bjarnason ráðherra hindraði framgang loforðs stjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda. Fyrt bjó hann til sáttanefnd hagsmunaaðila. Loforðið snerist samt ekki um slíka sátt, heldur um framgang þjóðarviljans. Enda fokkaðist nefndarstarfið upp. Jóhanna Sigurðardóttir talar ekki lengur um að efna loforð, heldur um að fara svokallaða samningaleið. Málið hefur lengi verið í höndum Jóns, sem nú beitir öllum tiltækum ráðum til að tefja vinnslu þess. Ljóst er, að það nær ekki fram að ganga í vor. Nú þurfum við að losna við Jón og ríkisstjórnina, kjósa eingöngu tæra fyrningarsinna til nýs Alþingis.