Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Sigfússon ákváðu einn góðan laugardag að grýta 11,6 milljörðum í Sjóvá. Þau voru á fundi með þremur starfsmönnum Fjármálaeftirlitsins. Þau töldu sig geta varið fjármunum skattgreiðenda á svo fáránlegan hátt. Sjóvá riðaði til falls, meðal annars vegna vafninga Bjarna Benediktssonar. Framlag Jóhönnu og Steingríms gufaði bara upp. Þetta gerðist framhjá fjárveitingavaldinu, sem er hjá Alþingi. Þjóðin vissi ekki neitt, enda segja þau Jóhanna og Steingrímur fátt. Augljóst er, að draga ber þau tvö fyrir Landsdóm fyrir geigvænlega meðhöndlun gríðarlegra fjármuna.