Vesturlönd fóru á sínum tíma ekki eftir trúarkreddum alþjóðastofnana. Þau byggðu sig upp án markaðsvæðingar og hnattvæðingar. Bandaríkin, Evrópa og Japan girtu sig tollmúrum, þangað til þau voru orðin ofaná í lífinu upp úr 1960. Þá fóru þau að predika kredduna, en fara þó enn ekki eftir henni sjálf. Til dæmis standa þau hart gegn tollfrjálsum innflutningi búvöru frá þróunarlöndunum. Þrátt fyrir fortíð sína láta Vesturlönd alþjóðastofnanir sínar predika frelsi. Hnattvæðingu og markaðsvæðingu. Með þeim afleiðingum, að Rússland og mörg önnur ríki voru rupluð og rænd. Skilin eftir í rúst.
