Fari Balkanika á Vitastíg ekki að opnast aftur eftir langt frí, óttast ég, að hún sé hætt. Væri skarð fyrir skildi, framandi matreiðsla frá Búlgaríu á lágu verði. En engin eftirsjá var að Brasílíu á Skólavörðustíg. Maturinn var gleymanlegur og verðið hærra en búast hefði mátt við. Þriðja heims matur á frönsku verði gengur ekki upp og Brasilía gekk ekki upp. Fúskið ræður ferð á mexíkóskri Santa Maria á Laugavegi. Leit þar inn í hádegi. Rogginn þjónn með hatt talaði í síma. Beið eftir afgreiðslu eins og margir á öðrum borðum. Ég stóð upp eftir rúmt kortér og gekk út. Hattþjónninn var enn að tala í síma.