Furðulegt hátterni banka

Punktar

Bankarnir taka ekki mark á fjármálastefnu stjórnvalda. Þeir höndla almúgann af meiri hörku en gert var ráð fyrir. Leggja sig í líma við að vera ljúfir við víkingana, sem settu þjóðina á hausinn. Úrræði bankanna fyrir almenning duga ekki að mati fjögurra af hverjum fimm, sem kynnast þeim. Ekkert er hins vegar nógu gott fyrir víkinga. Bankar hjálpa þeim að flakka í kennitölum. Að skilja skuldir eftir í galtómum eignarhaldsfélögum og halda áfram rekstri í nýjum. Reyna að kæfa góð fyrirtæki með því að mylja undir hallarekstur víkinganna. Með furðulegu hátterni eru bankarnir að drepa ríkisstjórnina.