Funda í eyjum og eyðimörkum

Punktar

Frelsishyggja alþjóðastofnana hnattvæðingarinnar hefur áratugum saman verið hlutdræg. Hún hefur dregið taum Vesturlanda í samskiptum við fátæk ríki. Troðið einkaleyfum og öðrum eignarétti hugverka upp á þriðja heiminn. En ekki troðið frjálsri verzlun með búvöru upp á Vesturlönd. Andófsfólk hefur lengi bent á þetta og elt aðalfundi stofnananna með margs konar aðgerðum og uppþotum. Á götum Prag, Seattle, Washington og Genúa. Loks varð þríeyki Alþjóðabankans, Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Heimsviðskiptastofnunar að flytja ársþing sín út í eyjar og eyðimerkur. Þær njóta nú einskis trausts.